22. október 2020
Fögnum vetri en förum varlega

Nú þegar veturinn nálgast er vert að huga að bílnum og hvernig best er að búa hann undir kólnandi veðurfar. Við lumum á nokkrum ráðum sem gott er að hafa í huga á þessum árstíma:
- Þegar kemur að 100% rafmagnsbílum, er best að hlaða þá þegar rafhlaðan er heit þar sem heitar rafhlöður hlaða betur en kaldar. Til dæmis er betra að hraðhlaða í lok ferðar en í byrjun þeirra næstu. Ef þú skýst t.d. á Flúðir, hleður þú þegar þú mætir í stað þess að hlaða áður en þú heldur heim.
- Þegar kemur að dekkjum þá mælum við ekki með nagladekkjum nema ef aðstæður krefjast þess. Það er líka vert að skoða orkunýtnistuðla dekkja við val á vetrardekkjum.
- Það borgar sig alltaf að hafa hleðslusnúru með í bílnum til að geta nýtt þær fjölmörgu AC hleðslur sem eru komnar víðsvegar um landið.
- Mundu að huga að hleðslunni þar sem rafbílar (eins og aðrir bílar) eyða meiri orku í kaldara (þéttara) lofti.
- Rafbílar sem eru ekki á nagladekkjum leggja frítt í stæði hjá Reykjavíkurborg í 90 mín. í senn. Ef þig vantar rafbílaklukku er hægt að sækja um hana hér.
Slökum á hraðanum og munum að brosa – hver er svo sem að flýta sér þessa dagana!