25. ágúst 2026

Fögnum fjölbreytileikanum

Loading...

Í Pride-vikunni urðum við fyrir því leiðinlega atviki að regnboga-fjölbreytileikafánarnir sem blöktu við höfuðstöðvar okkar á Bæjarhálsi voru teknir niður með ófrjálsri hendi. Við hörmum þetta að sjálfsögðu, en það breytir ekki því sem við stöndum fyrir.

Nýir fjölbreytileikafánar voru því pantaðir frá Samtökunum '78 og með því styrkjum við um leið mikilvægt starf þeirra í þágu hinsegin fólks og samfélagsins alls. Fánarnir eru nú komnir á sinn stað og munu standa út vikuna sem tákn um að virðing, fjölbreytileiki og inngilding eigi alltaf heima hjá okkur.

Atvikið er vissulega leiðinlegt, en það undirstrikar jafnframt hvers vegna fjölbreytileiki, jafnrétti og inngilding skipta máli. Það er ekki sjálfgefið að öll upplifi virðingu, öryggi og að þau tilheyri. Þess vegna skiptir máli að við sýnum í verki þau gildi sem við viljum standa fyrir.

Fjölbreytileiki og inngilding verða ekki til af sjálfu sér. Þetta mótast af því hvernig við mætum hvert öðru, hvaða rými við sköpum fyrir ólíka reynslu og sjónarmið og hvort fólk upplifi að það geti verið það sjálft án ótta við fordóma eða útilokun. Þegar ólíkar raddir fá að heyrast og fólk fær að njóta sín eins og það er, verður vinnustaðurinn sterkari og samfélagið betra.

Jafnrétti, fjölbreytileiki og inngilding eru ekki tímabundin verkefni eða áherslur sem birtast aðeins við sérstök tækifæri. Þetta eru gildi sem við viljum að endurspeglist í menningu okkar, samskiptum og ákvörðunum alla daga ársins.

Við stöndum með hinsegin samfélaginu í dag og alla daga.