Fleiri en 100 þúsund virkar ljósleiðaratengingar

Í fyrsta skipti eru nú fleiri en 100.000 ljósleiðaratengingar virkar í landinu að því er kemur fram í tölfræðiskýrslu Fjarskiptastofu fyrir fyrri hluta þessa árs. Um leið fækkar þeim sem láta sér eldri koparteningar duga.
Þessa dagana vinnur Ljósleiðarinn að því að fjölga fólki í Reykjanesbæ og Árborg sem á kost öflugum ljósleiðaratengingum, svo taka Vogar á Vatnsleyströnd við. „Þetta gengur alveg samkvæmt áætlun,“ segir Erling Freyr Guðmundsson, framkvæmdastjóri Ljósleiðarans, og hefur hug á að tengja víðar.
Mörg eiga ekki ennþá val
„Enn eru 15 til 20 þúsund heimili í landinu sem ekki njóta ljósleiðaratenginga. Þau eru langflest utan þess svæðis þar sem við eigum stofnstrengi og þess vegna erum við á fullu að finna út úr því hvernig fleiri geti notið þessara lífsgæða, sem mörgum finnast nú orðið svo sjálfsögð,“ bætir Erling Freyr við.
Ánægjuleg fyrirheit í stjórnarsáttmála
Erling segir ótengdu byggðarlögin ekki standa undir fjárfestingum á viðskiptalegum forsendum. „Nú þegar eru þúsundir Íslendinga tengdir ljósleiðara þar sem ríkið studdi við fjárfestingar og það er ánægjulegt að sjá í nýjum stjórnarsáttmála að hið opinbera ætlar áfram að tryggja fjármagn í slík verkefni. Þetta er ekki bara spurning um afþreyingu á heimilum heldur samkeppnishæfni fyrirtækja. Það er mikilvægt að atvinnulíf um allt land njóti ávaxta af þeirri samkeppni á fjarskiptamarkaði sem hefur nú komið virkum tengingum yfir hundrað þúsundin,“ segir Erling Freyr Guðmundsson, framkvæmdastjóri Ljósleiðarans.
Ljósleiðarinn hefur verið brautryðjandi í ljósleiðaratengingum heimila á Íslandi síðustu 15 árin og nú veita öll stærstu fjarskipta- og fjölmiðlafyrirtæki landsins þjónustu sína um opið net Ljósleiðarans.