26. ágúst 2022

Fjórir forsetar heimsóttu Hellisheiðarvirkjun ON

Fjórir forsetar heimsóttu Hellisheiðarvirkjun ON

Forsetar Eystrasaltslandanna þriggja ásamt Guðna Th. Jóhannessyni forseta Íslands heimsóttu Hellisheiðarvirkjun ON í dag. Var það ósk forsetaembættisins að fá að koma í heimsókn í virkjunina en Berglind Rán Ólafsdóttir framkvæmdastýra var ein þeirra sem tók á móti hópnum og ræddi um starfsemi Orku náttúrunnar.

Fór Berglind víða í sinni kynningu og talaði meðal annars um Jarðhitagarð ON á Hellisheiði auk þess sem hún sýndi forsetunum inn í vélarsal Hellisheiðarvirkjunar.

Var heimsóknin hluti af tveggja daga opinberri heimsókn forsetanna hingað til lands.

Auk Berglindar hélt Halla Hrund Logadóttir Orkumálastjóri tölu sem og Bjarni Bjarnason forstjóri OR og Edda Aradóttir framkvæmdastýra Carbfix.