14. febrúar 2025

Fjölmennt hjá Orkuveitunni á Framadögum

Fjölmennt hjá Orkuveitunni á Framadögum

Framadagar Háskólans í Reykjavík fóru fram í gær og var Orkuveitan, ásamt dótturfélögum sínum - Ljósleiðaranum, Carbfix, Veitum og Orku náttúrunnar, með glæsilegan bás sem vakti mikla athygli meðal háskólanema.

Starfsfólk Orkuveitunnar og dótturfélaga var á staðnum til að veita innsýn í öll þau fjölbreyttu og spennandi störf sem við höfum upp á að bjóða og fjölmargir nemendur komu við hjá okkur til að kynna sér fjölbreytt atvinnutækifæri og spyrja út í starfsemi fyrirtækjanna.

Stemningin var frábær, ekki síst við lukkuhjólið okkar, þar sem gestir gátu unnið veglega vinninga. Það var sérstaklega ánægjulegt að hitta svo marga drífandi og metnaðarfulla nemendur sem vilja hafa áhrif á framtíðina með okkur.

Við viljum þakka öllum þeim sem komu við á básnum okkar, spjölluðu við starfsfólkið okkar og sýndu áhuga á starfsemi Orkuveitunnar og dótturfélaga. Við hlökkum til að sjá ykkur sem hluta af teyminu okkar í framtíðinni – hvort sem það er í sumarstörfum eða framtíðarstörfum!

2025-framadagar-sævar-2.jpg
2025-framadagar-01.jpg
2025-framadagar-22.jpg
2025-framadagar-09.jpg
2025-framadagar-10.jpg
2025-framadagar-18.jpg
2025-framadagar-25.jpg
IMG_8656.jpg
DSC07139.JPG
DSC07230.JPG
IMG_8631.jpg
2025-framadagar-04.jpg