23. nóvember 2022

Fjölmenni í sögugöngu: Frá skítalækjum til fráveitu

Fjölmenni í sögugöngu: Frá skítalækjum til fráveitu
Veitur stóðu fyrir afar vel heppnaðri sögugöngu um fráveituna í miðborginni  þann 22. nóvember. Mikill áhugi var á göngunni sem bar yfirskriftina "Frá skítalækjum til fráveitu og lýðheilsu," en alls tóku yfir 130 fróðleiksfúsir göngugarpar þátt í henni.  Í göngunni rak Guðjón Friðriksson sagnfræðingur, skólpsögu miðborgarinnar síðustu 100 árin. Gangan hófst við Landakotsspítala en það voru einmitt nunnurnar í Landakoti sem létu fyrst leggja skólplögn ofan af hæðinni niður Ægisgötuna og í sjó fram árið 1902.