Fjárhagsspá Orkuveitunnar 2027–2031 | Um 44 milljarða fjárfestingar á ári
Mikil uppbygging er fram undan hjá fyrirtækjunum í samstæðu Orkuveitunnar. Samkvæmt samandreginni fjárhagsspá fyrir móðurfélagið og dótturfélögin Veitur, Orku náttúrunnar, Ljósleiðarann og Carbfix er áætlað að fjárfesta fyrir samtals 218,7 milljarða króna á árunum 2027–2031. Það jafngildir að meðaltali um 44 milljörðum króna á ári.
Fjárfestingarnar styðja við vaxandi samfélag og beinast meðal annars að aukinni orkuöflun, styrkingu og endurnýjun veitukerfa, auknu afhendingaröryggi heits vatns, orkuskiptum, stafrænni þróun fjarskiptakerfa, rannsóknum og nýsköpun.
Fjárfest til framtíðar
„Með fjárfestingum næstu ára búum við Orkuveituna undir áframhaldandi vöxt samfélagsins og aukna þörf fyrir örugga og sjálfbæra grunnþjónustu. Jafnframt eflum við viðnám fyrirtækjanna gagnvart loftslagsvánni og annarri hættu. Spáin endurspeglar metnað okkar til að auka orkuöflun, efla veitukerfin og þróa nýjar lausnir; nýta djúpa jarðhitann og fara nýjar leiðir við þróun orkukosta. Um leið gætum við hagsýni í rekstri til að tryggja trausta fjárhagsstöðu. Umfangsmiklar fjárfestingar næstu ára styrkja afhendingaröryggi þjónustu okkar og samkeppnishæfni samfélagsins til framtíðar,“ segir Sævar Freyr Þráinsson, forstjóri Orkuveitunnar.
Vöxtur og traust fjárhagsstaða
Í spánni er meðal annars gert ráð fyrir að:
- árlegar tekjur aukist um 22,2 milljarða króna frá 2027 til 2031, eða um 28,2%,
- rekstrarhagnaður fyrir afskriftir og fjármagnsliði (EBITDA) aukist um 17,1 milljarð króna, eða 35,8%,
- rekstrarkostnaður án afskrifta aukist um 5,1 milljarð króna, eða 16,5%,
- hagnaður samstæðunnar verði 16,4 milljarðar króna árið 2031,
- árlegt veltufé frá rekstri aukist úr 34,5 milljörðum króna árið 2027 í 42,5 milljarða króna árið 2031, eða um 23,2%,
- eiginfjárhlutfall verði 50,1% árið 2027 og 47,8% í lok spátímabilsins,
- arðgreiðslur á tímabilinu nemi samtals 35,1 milljarði króna.
Aukið veltufé frá rekstri styrkir getu samstæðunnar til að standa undir fjárfestingum og afborgunum lána. Gert er ráð fyrir innlendri og erlendri lántöku til að fjármagna uppbygginguna, að mestu innan græns fjármögnunarramma Orkuveitunnar. Erlend lántaka á jafnframt að stuðla að jafnvægi í sjóðflæði í erlendum myntum.
Í spánni er ekki gert ráð fyrir breytingu á eignarhaldi Ljósleiðarans eða Carbfix, þótt slíkt sé til skoðunar. Hún tekur heldur ekki tillit til hugsanlegra áhrifa frekari opinberrar gjaldtöku af orkunotkun og orkuvinnslu.
Stjórn Orkuveitunnar hefur samþykkt fjárhagsspána fyrir árið 2027 og langtímaspá fyrir árin 2028–2031. Áður höfðu stjórnir dótturfélaganna samþykkt spár viðkomandi félaga. Spáin fer nú til umfjöllunar hjá Reykjavíkurborg sem hluti af fjárhagsáætlun samstæðu borgarinnar.