19. mars 2026
Fjárfestakynning Orkuveitunnar

Orkuveitan hélt fjárfestakynningu í samstarfi við Fossa fjárfestingarbanka í dag í húsakynnum fyrirtækisins að Bæjarhálsi.
Á fundinum fóru fulltrúar Orkuveitunnar yfir starfsemi samstæðunnar, rekstur hennar og helstu áherslur í fjárfestingum og þróun verkefna á næstu árum.
Kynningargögn frá fundinum hafa nú verið birt opinberlega og eru aðgengileg neðst í þessari frétt.
Orkuveitan er móðurfélag fyrirtækja á sviði orkuvinnslu, veitustarfsemi og fjarskipta. Fyrirtækin eru Veitur, Orka náttúrunnar, Ljósleiðarinn og Carbfix – þau gegna lykilhlutverki í uppbyggingu og rekstri mikilvægra innviða íslensks samfélags.