Fjárfestakynning Orkuveitunnar 19. mars 2026

Orkuveitan mun, í samstarfi við Fossa fjárfestingarbanka, halda fjárfestakynningu fimmtudaginn 19. mars 2026 á 6. hæð í húsakynnum Orkuveitunnar að Bæjarhálsi 1 í Reykjavík.
Boðið verður upp á morgunverð frá kl. 08:00, en kynning hefst kl. 08:30 og stendur til kl. 09:30.
Á fundinum munu fulltrúar Orkuveitunnar fara yfir starfsemi fyrirtækisins, rekstur og helstu áherslur í fjárfestingum og þróun verkefna á næstu árum.
Orkuveitan er móðurfélag fyrirtækja á sviði orkuvinnslu, veitustarfsemi og fjarskipta og eru fyrirtækin skilgreind sem mikilvægir innviðir íslensks samfélags. Fyrirtæki hennar eru Veitur, Orka náttúrunnar, Ljósleiðarinn og Carbfix.
Kynningargögn frá fundinum verða birt opinberlega á vef Orkuveitunnar að fundi loknum.
Nánari upplýsingar:
Snorri Hafsteinn Þorkelsson
framkvæmdastjóri fjármála Orkuveitunnar
snorri.hafsteinn.thorkelsson@orkuveitan.is
Arnar Geir Sæmundson
Markaðsviðskipti hjá Fossum fjárfestingarbanka
arnar.saemundsson@fossar.is