31. mars 2023
Enn fjölgar Hverfahleðslum í Reykjavík

Orka náttúrunnar rekur Hverfahleðslur í samstarfi við Háskóla Íslands á tveimur stöðum í Reykjavík. Mikil aukning hefur verið á notkun þeirra undanfarið og í því ljósi var ákveðið að bæta við tveimur hleðslustöðvum á hvorum stað. Nú geta því sex bílar hlaðið samtímis við Stakkahlíðina í stað fjögurra áður og átta bílar við Tæknigarð í stað sex. Það er mikil eftirspurn eftir hleðsluinnviðum á þessum slóðum og er þessi fjölgun liður í því að mæta þeirri þörf.
Áfram með orkuskiptin!
