10. janúar 2025
Engin falin áform í Hafnarfirði

Í umfjöllun Heimildarinnar í dag, 10. janúar, eru áform Carbfix í Hafnarfirði gerð tortryggileg meðal annars á hvaða hátt mögulegir viðskiptavinir eru valdir og um stærð verkefna Carbfix. Hvoru tveggja stenst ekki skoðun. Umfjöllunin byggir á útleggingum blaðamanna Heimildarinnar út frá úreltum gögnum, meðal annars drögum að fjárfestakynningu frá árinu 2023.