28. apríl 2021

Endurnýjun búnaðar í fráveitu Veitna

Endurnýjun búnaðar í fráveitu Veitna
Veitur munu í sumar hefja framkvæmdir við nokkuð umfangsmikla endurnýjun búnaðar í dælu- og hreinsistöðvum fráveitu á höfuðborgarsvæðinu. Verkefnið stendur yfir í ríflega ár og á þeim tíma verða tímabundnar rekstrartruflanir í stöðvunum og búast má við að í einhverjum tilvikum þurfi að losa óhreinsað skólp í sjó á meðan á þeim stendur.  Framkvæmdirnar felast í endurnýjun vélbúnaðar í hreinsistöðvum við Ánanaust og Klettagarða og í dælustöðvum við Ingólfsstræti, Laugalæk og Faxaskjól og er gert ráð fyrir að þeim ljúki haustið 2022.