12. júní 2025

Elliðaárstöð varð hugmyndastöð

Elliðaárstöð varð hugmyndastöð
Frumkvöðlar, hönnuðir, tæknifólk og sérfræðingar úr atvinnulífinu voru meðal þeirra sem tóku þátt í Nýsköpunarfestivali Veitna en um 100 manns voru samankomin til að leysa fimm áskoranir sem Veitur standa frammi fyrir. Festivalinu var ætlað að vera skemmtilegasta vinnuvika ársins og byggðist dagskráin á svokölluðum hönnunarsprettum, þar sem teymin fengu þrjá daga til að greina... Read more »

Frumkvöðlar, hönnuðir, tæknifólk og sérfræðingar úr atvinnulífinu voru meðal þeirra sem tóku þátt í Nýsköpunarfestivali Veitna en um 100 manns voru samankomin til að leysa fimm áskoranir sem Veitur standa frammi fyrir. Festivalinu var ætlað að vera skemmtilegasta vinnuvika ársins og byggðist dagskráin á svokölluðum hönnunarsprettum, þar sem teymin fengu þrjá daga til að greina áskoranir, skapa lausnir og prófa frumgerðir Gestastofu Elliðaárstöðvar reyndist einstaklega vel en henni var skipt upp í fjögur svæði þar sem hver sprettur fór fram í sitthvoru rýminu. Þá var fundaraðstaðan í Heimili veitna einnig notuð til vinnu.

Þátttakendur leituðu lausna við fjölbreyttum viðfangsefnum eins og hvernig hraða mætti framkvæmdum í veitukerfum, endurnýta fitu úr fráveitukerfinu, hvetja til meðvitaðrar orkunotkunar meðal almennings, tryggja samræmi milli veituuppbyggingar og þéttingar borgarinnar, auk þess sem þeir endurhugsuðu fráveitukerfi framtíðarinnar með sjálfbærni í forgrunni. Árangurinn lét ekki á sér standa og fjölmargar ferskar hugmyndir litu dagsins ljós.

Unnið verður áfram með öll þessara verkefna að einhverju leyti. Jafnt innlendir sem og erlendir sérfræðingar héldu fyrirlestra sem blés móð í þátttakendur. Dr. Angela MacOscar, nýsköpunarstjóri hjá Northumbrian Water frá Englandi, Max McShane, yfirmaður stafrænnar umbreytingar hjá Octopus Energy í London, og framtíðarfræðingurinn Bergur Ebbi Benediktsson. Hin bráðskemmtilega Sandra Barilli stýrði viðburðinum af einstakri snilld.