31. október 2025

Elliðaárstöð tilnefnd til tveggja hönnunarverðlauna

Elliðaárstöð tilnefnd til tveggja hönnunarverðlauna
Gömlum og fallegum byggingum hefur verið gefið nýtt hlutverk og svæðið sem áður var iðnaðarsvæði er nú orðið aðgengilegt gestum býður nú upp á þjónustu, vísindamiðlun, fjölbreytta viðburði og skemmtilegt mannlíf. Tilnefning til Mies van der Rohe verðlaunanna í arkitektúr 2026 Mies van der Rohe verðlaunin eru ein virtustu byggingarlistarverðlaun í heimi. Þau voru sett... Read more »

Gömlum og fallegum byggingum hefur verið gefið nýtt hlutverk og svæðið sem áður var iðnaðarsvæði er nú orðið aðgengilegt gestum býður nú upp á þjónustu, vísindamiðlun, fjölbreytta viðburði og skemmtilegt mannlíf.

Tilnefning til Mies van der Rohe verðlaunanna í arkitektúr 2026

Mies van der Rohe verðlaunin eru ein virtustu byggingarlistarverðlaun í heimi. Þau voru sett á stofn árið 1987 af Evrópusambandinu og Stofnun Mies van der Rohe í Barcelona og er ætlað að vekja athygli á því sem best er gert í evrópskri byggingarlist og koma allar byggingar sem er við tveimur árum fyrir afhendingu til greina. Elliðaárstöð hefur verið tilnefnd til hinna virtu Mies van der Rohe verðlaunanna í arkitektúr 2026.Verðlaunaafhendingin fer fram í maí 2026.

Tilnefning til Hönnunarverðlauna Íslands 2025 í flokknum staður

Hönnunarverðlaun Íslands varpa ljósi á mikilvægi og gæði hönnunar og arkitektúrs á Íslandi með áherslu á áhrif þeirra á lífsgæði, verðmætasköpun og sjálfbærni fyrir samfélagið allt Elliðaárstöð er tilnefnd til hönnunarverðlauna Íslands 2025. Verðlaunaafhendingin fer fram fimmtudaginn 6. nóvember. Fjölmargir aðilar hafa komið að verkefninu og eiga ríkan þátt í því að gera Elliðaárstöð að þeim aðlaðandi áfangastað orku og náttúru sem hann er orðin. Hönnunarteymið Terta og Landslag ásamt fjölmörgum fleirum sáu um hönnun svæðisins.