10. nóvember 2025

Elliðaárstöð er staður ársins 2025

Elliðaárstöð er staður ársins 2025
Með miklu þakklæti og stolti segjum við frá því að Elliðaárstöð var valinn staður ársins 2025 á Hönnunarverðlaunum Íslands en þau voru afhent þann 6. nóvember við hátíðlega athöfn. Elliðaárstöð er lifandi áfangastaður með ólíkum rýmum og fjölbreytilegri upplifun í Elliðaárdal. Svæðið iðar nú af lífi árið um kring en var áður afvikið iðnaðarsvæði. Með... Read more »

Með miklu þakklæti og stolti segjum við frá því að Elliðaárstöð var valinn staður ársins 2025 á Hönnunarverðlaunum Íslands en þau voru afhent þann 6. nóvember við hátíðlega athöfn. Elliðaárstöð er lifandi áfangastaður með ólíkum rýmum og fjölbreytilegri upplifun í Elliðaárdal. Svæðið iðar nú af lífi árið um kring en var áður afvikið iðnaðarsvæði. Með endurhönnun á svæðinu hefur gömlum byggingum verið gefið nýtt hlutverk. Svæðið er hannað með fræðslu, samveru, útiveru og leik í huga. Líkt og árnar voru áður virkjaðar er nú lögð áhersla á að virkja fólk og hugvit í Elliðaárstöð. Unnið er að því að fræða ungmenni um vísindi, orku og auðlindir. Það sem af er ári hafa rúmlega 80.000 gestir heimsótt Elliðaárstöð en við erum full tilhlökkunnar að taka á móti enn fleiri gestum. Elliðaárstöð er hönnuð af þverfaglega hönnunarteyminu Tertu í samstarfi við Landslag. Við óskum þeim innilega til hamingju með verðlaunin. Á athöfninni kynnti Terta og sögðu meðal annars: ,,Við bökuðum tertuna en teymi Elliðaárstöðvar bauð í veisluna og þvílík veisla!" Sérstakar þakkir fá allir þeir fjölbreyttu samstarfsaðilar, gestir og unnendur dalsins sem hafa tekið okkur vel og gert Elliðaárstöð að lifandi áfangstað orku og náttúru!