7. október 2024

Edda Aradóttir, framkvæmdastýra Carbfix, hlýtur verðlaun Sameinuðu þjóðanna fyrir framúrskarandi árangur í loftslagsmálum og jafnréttismálum

Edda Aradóttir, framkvæmdastýra Carbfix, hlýtur verðlaun Sameinuðu þjóðanna fyrir framúrskarandi árangur í loftslagsmálum og jafnréttismálum
Edda Aradóttir, framkvæmdastýra Carbfix, hlaut verðlaunin "WE Empower UN SDG Challenge" frá Sameinuðu þjóðunum fyrir framúrskarandi árangur í þágu loftslagsmála og jafnréttis í Evrópu og Norður Ameríku. Verðlaunin eru veitt þeim sem styðja við og hvetja samfélög til aðgerða með því að ná heimsmarkmiðum fyrir 2030. Edda tók þátt í viðburðum kringum 79. Heimsþing Sameinuðu þjóðanna sem fulltrúi Evrópu og Norður Ameríku WE Empower UN SDG Challenge.