20. mars 2026

Djúpborun á Nesjavöllum hlýtur hæsta styrk úr Loftslags- og orkusjóði

Loading...

Orkuveitan leiðir IDDP3 í víðtæku samstarfi við önnur orkufyrirtæki, háskóla og vísindastofnanir. Hafist verður handa við að bora IDDP3 í árslok 2026.

IDDP3, hlaut í gær hæsta styrk úr Loftslags- og orkusjóði, eða tæpar 310 milljónir króna. IDDP3 er þriðja djúpborunarholan sem boruð verður hér á landi og er hluti af Iceland Deep Drilling Project verkefninu, sem er samstarfsverkefni Orkuveitunnar, HS Orku, Landsvirkjunar og stjórnvalda.

IDDP er eitt metnaðarfyllsta rannsóknar- og nýsköpunarverkefni á sviði jarðhita í heiminum og hefur frá upphafi verið leiðandi í að rannsaka og prófa nýjar aðferðir til að hagnýta jarðhita við hærra hitastig en áður hefur reynst mögulegt. Sú nýting getur umbylt orkuvinnslu á Íslandi og á heimsvísu.

Tvær fyrri djúpborunarholur hafa staðfest að ofurheit auðlind er til staðar og sú þriðja verður boruð á Nesjavöllum þar sem vitað er að hún liggur nokkuð grunnt. Það er Orkuveitan sem leiðir IDDP3 í víðtæku samstarfi við önnur orkufyrirtæki, háskóla og vísindastofnanir. Hafist verður handa við að bora IDDP3 í árslok 2026.

Stórt skref fyrir heiminn allan

„Það er mjög jákvætt að stjórnvöld sýni djúpboruninni skýran stuðning og metnað til að halda Íslandi áfram í fremstu röð þegar kemur að nýtingu jarðhita“, segir Sævar Freyr Þráinsson, forstjóri Orkuveitunnar. „Þegar okkur tekst að beisla jarðhita sem er yfir 400°C verður það stórt skref fyrir framtíð sjálfbærrar orku í heiminum öllum.“

„Ávinningurinn af því að virkja orku úr dýpri og heitari lögum jarðar er margvíslegur; meiri afköst, orkuríkari vökvi, minna umhverfisrask og ekki síst betri nýtni orkunnar sem er eitt mikilvægasta verkefni sem við stöndum frammi fyrir, að nýta auðlindirnar enn betur,“ segir Hera Grímsdóttir, framkvæmdastýra Rannsókna og nýsköpunar hjá Orkuveitunni.

„Djúpnýting er þriðja kynslóð jarðhitavinnslu í heiminum og við erum afar stolt af því að leiða IDDP3 með okkar öfluga vísindafólki og í þéttu alþjóðlegu samstarfi. Við erum þakklát með þennan rausnarlega styrk stjórnvalda og erum ótrúlega spennt að byrja að bora á Nesjavöllum.“