25. nóvember 2026

COP31: Mikilvægi orkuskipta og öflugra innviða í brennidepli

COP31: Mikilvægi orkuskipta og öflugra innviða í brennidepli

Loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna, COP31, lauk í Antalya í Tyrklandi um helgina án þess að samkomulag næðist um lokayfirlýsingu. Þrátt fyrir þá niðurstöðu var ráðstefnan mikilvægur vettvangur fyrir samtal um orkuskipti, loftslagsaðgerðir og uppbyggingu innviða. Sævar Freyr Þráinsson, forstjóri Orkuveitunnar, ásamt Sólrúnu Kristjánsdóttur, framkvæmdastýru Veitna, og Árna Hrannari Haraldssyni, framkvæmdastjóra Orku náttúrunnar, tóku virkan þátt í umræðunni, miðluðu íslenskri reynslu og efldu tengsl við alþjóðlega samstarfsaðila.

Eftir rúmlega tveggja vikna samningaviðræður og tveggja daga framlengingu lauk COP31 án lokasamkomulags. Ágreiningur um orðalag varðandi jarðefnaeldsneyti reyndist helsta hindrunin, auk þess sem fjármögnun loftslagsaðgerða var meðal ágreiningsmála. Þótt niðurstaða ráðstefnunnar hafi verið vonbrigði, breytir hún þó engu um nauðsyn þess að hraða loftslagsaðgerðum.

Íslenska jarðhitasagan fyrirmynd annarra þjóða

Á COP31 var meðal annars fjallað um mikilvægi aukinnar rafvæðingar og betri nýtingar jarðhita. Íslensk reynsla af uppbyggingu hitaveitna vakti athygli sem dæmi um hvernig framsýni, rannsóknir og fjárfesting í innviðum geta skilað auknu orkuöryggi, bættum lífsgæðum og verðmætasköpun.

Á ráðstefnunni voru kynnt markmið um að auka hlut raforku í endanlegri orkunotkun heimsins úr um 23% í 35% fyrir árið 2035 og að tólffalda nýtingu jarðhita á heimsvísu fyrir árið 2050.

Bein nýting jarðhita til húshitunar er sérstaklega mikilvæg í þessu samhengi. Hún dregur úr álagi á raforkukerfi og gerir kleift að nýta raforku í auknum mæli til orkuskipta í samgöngum og iðnaði.

Nýsköpun og hringrásarlausnir í sviðsljósinu

Sævar Freyr Þráinsson tók þátt í hringborðsumræðum á vegum Green by Iceland og Nordic Innovation um hvernig nýta megi losun og hliðarstrauma frá orkuvinnslu og iðnaði til aukinnar verðmætasköpunar. Þar var meðal annars rætt hvernig hringrásarhugsun, nýsköpun og samstarf geta skapað ný tækifæri til að nýta auðlindir betur, svo sem varma, vatn og koltvísýring frá jarðhitavinnslu.

Árni Hrannar Haraldsson, framkvæmdastjóri Orku náttúrunnar, tók jafnframt þátt í hringborðsumræðum á vegum Nordic Innovation um hvernig hægt sé að þróa hringrásarlausnir í öfluga atvinnustarfsemi.

Þar kynnti hann meðal annars Jarðhitagarð Orku náttúrunnar við Hellisheiðarvirkjun þar sem fyrirtæki nýta endurnýjanlega orku og auðlindastrauma frá virkjuninni til fjölbreyttrar starfsemi. Verkefnið sýnir hvernig fjölnýting jarðhita getur skapað ný viðskiptatækifæri, aukið verðmætasköpun og stuðlað að ábyrgri auðlindanýtingu.

Árni Hrannar miðlaði jafnframt reynslu ON Power af uppbyggingu hleðsluinnviða í umræðum um orkuskipti í samgöngum.

Samhliða dagskrá ráðstefnunnar nýttu fulltrúar Orkuveitunnar, Orku náttúrunnar og Veitna tækifærið til að eiga samtöl og efla tengsl við alþjóðlega aðila á sviði orku, nýsköpunar og fjármögnunar.

Í samtölunum gafst tækifæri til að miðla íslenskri reynslu, kynnast lausnum og verkefnum annarra og ræða möguleika á frekara samstarfi. Slík tengsl eru mikilvæg fyrir áframhaldandi þróun jarðhitanýtingar, nýsköpun og uppbyggingu sjálfbærra orkuinnviða.

Öflugir innviðir forsenda loftslagsaðgerða

Mikilvægi orku- og veituinnviða var einnig áberandi í umræðum ráðstefnunnar. Loftslagsaðgerðir snúast ekki eingöngu um orkuframleiðslu og samdrátt í losun heldur einnig um að tryggja áreiðanlega þjónustu og aðlaga samfélög að breyttu loftslagi.

Vatnsveitur, fráveitur og lausnir til að takast á við aukna úrkomu eru þar mikilvægir þættir. Þá var fjallað um vaxandi ógnir við mikilvæga innviði og nauðsyn þess að styrkja viðnámsþrótt samfélaga með samstarfi, viðbúnaði og auknu öryggi.

Þessi verkefni tengjast beint starfsemi Orkuveitunnar og dótturfélaga hennar, þar sem örugg orkuöflun, áreiðanleg veituþjónusta og öflugir innviðir eru grundvöllur daglegra lífsgæða.

Áfram frá metnaði til framkvæmda

Þótt ekki hafi náðst samkomulag um lokayfirlýsingu COP31 stendur mikilvægi raunverulegra loftslagsaðgerða óbreytt. Reynslan frá Íslandi sýnir að langtímahugsun, samstarf og fjárfesting í innviðum geta skilað árangri sem hefur áhrif á samfélög til kynslóða.

Fyrir Orkuveituna felast tækifærin meðal annars í áframhaldandi uppbyggingu orku- og veituinnviða, þróun djúpnýtingar jarðhita, nýsköpun og betri nýtingu auðlinda.

Framsýni fyrri kynslóða lagði grunninn að þeim lífsgæðum sem við búum við í dag. Nú er verkefnið að byggja áfram á þeirri þekkingu og tryggja áframhaldandi lífsgæði fyrir komandi kynslóðir.

cop31
cop31
cop31
cop31