20. janúar 2025

Carbfix tilnefnt til Nýsköpunarverðlauna Norðurlandanna

Carbfix tilnefnt til Nýsköpunarverðlauna Norðurlandanna
Við hjá Carbfix erum ákaflega stolt af þessari útnefningu til Nýsköpunarverðlauna Norðurlandanna 2025 (Nordic Innovation Award), sérstaklega þar sem áherslan er einnig á verndun hugverka sem skiptir okkur miklu máli. Við höfum lagt sérstaka áherslu á að sækja um einkaleyfi fyrir hugverk Carbfix sem hafa verið þróuð undir forystu íslensks vísindafólks síðan snemma á þessari öld. Við höfum frá upphafi leitað leiða til að hagnýta vísindi og tækni í baráttunni gegn loftslagsbreytingum og erum sannfærð um að virði hugverka skapi nauðsynlegan grundvöll til að dreifa lausnum okkar víðar. Það er tilgangur Carbfix að tæknin nýtist sem víðast til að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda, þessi tilnefning er okkur mikil hvatning til að halda áfram að þróa og skala upp lausnir okkar á alþjóðavettvangi svo við getum haft raunveruleg áhrif á loftslagsbreytingar. Fréttatilkynninguna má lesa í heild sinni hér að neðan.