25. apríl 2024

Carbfix í samstarf við Deep Sky um kolefnisverkefni í Kanada

Carbfix í samstarf við Deep Sky um kolefnisverkefni í Kanada
Carbfix og kanadíska fyrirtækið Deep Sky hafa stofnað til samstarfs um að kanna möguleika á að beita Carbfix-aðferðinni til bindingar kolefnis í jörðu í Quebec-fylki í Kanada. Forkönnun fyrirtækjanna á því hvort jarðlög í Quebec kunni að henta til að binda koldíoxíð í formi kolefnissteinda var hleypt af stokkunum í janúar síðastliðnum og stendur fram til júní.