22. október 2024
Carbfix hlýtur Nýsköpunarverðlaun Íslands 2024

Í dag hlaut Carbfix Nýsköpunarverðlaun Íslands 2024 fyrir þróun og markaðssetningu á tæknilausnum sem fanga og binda koldíoxíð og brennisteinsvetni varanlega í bergi. Viðurkenningin var afhent á Nýsköpunarþingi sem haldið var í Grósku, þar sem Kári Helgason, sem leiðir rannsóknir og nýsköpun hjá Carbfix, og Ragna Björk Bragadóttir, verkefnastýra styrkverkefna, tóku við verðlaununum úr hendi Áslaugar Örnu Sigurbjörnsdóttur, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra.