3. nóvember 2023

Carbfix hefur prófanir á kolefnisbindingu með sjó – nýmæli á heimsvísu

Carbfix hefur prófanir á kolefnisbindingu með sjó – nýmæli á heimsvísu
Stór tímamót urðu hjá Carbfix á dögunum þegar tilraunir hófust í Helguvík með að nýta sjó í stað ferskvatns til varanlegrar bindingar koldíoxíðs (CO2) í berglögum. Tilraunin er nýmæli á heimsvísu og mikilvægt skref í framþróun tækni til kolefnisbindingar.