5. nóvember 2024
Carbfix, Elkem á Íslandi og Þróunarfélag Grundartanga í samstarf um föngun og kolefnisbindingu frá kísilmálmverinu.

Þann þriðja nóvember undirrituðu Carbfix, Elkem á Íslandi og Þróunarfélag Grundartanga samning sem miðar að því að Carbfix bindi CO2 frá kísilmálmveri Elkem á Grundartanga. Viðstödd voru fulltrúar fyrirtækjanna, fulltrúar sveitarfélaga í nágrenninu, gestir og Guðlaugur Þór Þórðarson umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra.