23. október 2023
Carbfix á forsíðu National Geographic: Kolefninu skilað aftur til síns heima

Carbfix sem brautryðjandi á heimsvísu í bindingu koldíoxíðs (CO2) er á forsíðu nýjustu útgáfu hins virta tímarits National Geographic, sem kemur út á næstu dögum. Í ítarlegri grein tímaritsins um loftslagslausnir er því meðal annars lýst hvernig Carbfix-aðferðin er ein þeirra lausna sem beita má til að vinna gegn hlýnun jarðar.