30. desember 2023

Breytt verðskrá tekur gildi 1.janúar 2024

Breytt verðskrá tekur gildi 1.janúar 2024

Nú um áramótin mun verðskrá Orku náttúrunnar taka breytingum og mun almennt söluverð á raforku hækka um 8,5%.

Verð til almennra notenda ON fer úr 9,18 kr. í 9,96 kr. á kWh, þannig að reikningur meðalheimilis mun hækka um u.þ.b. 280 kr. á mánuði.

Við hvetjum viðskiptavini okkar til að nýta betur og nota minna því það er besti sparnaðurinn fyrir einstaklinga, heimili og umhverfið. Það eru ýmsar leiðir til að ná niður notkuninni og lumum við á nokkrum góðum ráðum sem hægt er að kynna sér hér.