10. október 2024
Breytingar á verðskrá

Verðskrá veitufyrirtækja hefur hækkað, því höfum við uppfært verðskrá rafmagns fyrir Heimahleðslu í fjölbýli hjá Orku náttúrunnar frá og með 10. október 2024.
Sjá nánar verðskrá.
Samhliða því hækkar verð í Hverfahleðslu ON til almennra notenda, fer úr 29 kr./kWh í 31 kr./kWh. Þá hækka Vildarkjör á Hverfahleðslu ON úr 23 kr./kWh í 25 kr./kWh.
Viðskiptavinir með heimilisrafmagn hjá ON og ON appið/lykil fá betri kjör af rafmagnsnotkun heimilisins og á hleðslustöðvum ON. Kynntu þér betri kjör hér.