17. janúar 2020
Breytingar á innheimtu gjalda

Um áramótin urðu breytingar hjá Veitum á innheimtu gjalda fyrir rafmagn og heitt vatn. Nú fá viðskiptavinir kröfu frá Veitum fyrir rafmagnsdreifingu og heitt vatn, en hún kom áður frá OR, móðurfélagi Veitna. Breytingin er gerð í þeim tilgangi að skýra betur fyrir viðskiptavinum okkar hvaðan þjónustan er keypt og fyrir hvað er verið að greiða.