28. febrúar 2020

Breytingar á hæð vatnsborðs í Elliðavatni

Breytingar á hæð vatnsborðs í Elliðavatni
Vegna framkvæmda Veitna neðst í Elliðaárdal var vatnsborð Elliðavatns lækkað of mikið og fór það niður fyrir viðmiðunarmörk 19. febrúar síðastliðinn. Brugðist hefur verið við þessum mistökum og gert er ráð fyrir að yfirborð vatnsins verði aftur komið upp fyrir mörkin á næstu dögum. Viðmiðunarmörkin eru að vatnshæð Elliðavatns fari ekki undir 76,40 metra hæð yfir sjávarmáli en hún fór niður í 76,03. Veitur hafa upplýst hagaðila og Hafrannsóknarstofnun er að kanna hugsanleg áhrif þessa á lífríki vatnsins.