28. ágúst 2020

Brennisteinslykt vegna bilunar í Hellisheiðarvirkjun - viðgerð lokið

Brennisteinslykt vegna bilunar í Hellisheiðarvirkjun - viðgerð lokið
Vegna bilunar í Hellisheiðarvirkjun jókst styrkur brennisteinsvetnis í heitu vatni á ákveðnum svæðum á höfuðborgarsvæðinu í dag. Búið er að finna bilunina sem varð þess valdandi að styrkur brennisteinsvetnis í heita vatninu jókst lítillega. Svæðin sem um ræðir eru: Grafarholt, Norðlingaholt, Seláshverfi, Breiðholt, Kópavogur utan Lundarhverfis, Garðabær, þ.m.t. Álftanes, Hafnarfjörður og sumarbústaðarhverfi í Miðdalslandi (sjá meðfylgjandi kort).