11. mars 2026

Blágræn ofanvatnslausn er snjöll lausn

Blágræn ofanvatnslausn er snjöll lausn
Hvert fer regnið í borginni? Hvert fer vatnsdropinn þegar hann fellur sem rigning á þök, götur og stéttir? Í náttúrunni rennur vatnið niður í jörðina í gegnum jarðveginn, gras, mold, sand og sprungur í hrauni. Í borginni hindra götur, torg, stéttir og hús þessa leið. Þá er regnvatni oft veitt í niðurföll þar sem það... Read more »

Hvert fer regnið í borginni?

Hvert fer vatnsdropinn þegar hann fellur sem rigning á þök, götur og stéttir? Í náttúrunni rennur vatnið niður í jörðina í gegnum jarðveginn, gras, mold, sand og sprungur í hrauni. Í borginni hindra götur, torg, stéttir og hús þessa leið. Þá er regnvatni oft veitt í niðurföll þar sem það sameinast skólpi frá heimilum í fráveitukerfinu. Í fráveitunni er vatninu dælt áfram. Það fer í hreinsistöð og rennur síðan eftir langri lögn út í sjó. Þegar regnvatn fer þessa leið þarf fráveitukerfið að taka við miklu meira magni af vatni en ella. Það skapar vandamál í óveðri og þegar mikið rignir. Álag á fráveitukerfið verður meira, þetta kostar tíma, orku og peninga. Blágrænar ofanvatnslausnir eru betri lausn. Þær leyfa regnvatni að fara aftur náttúrulega leið. Tjörnin á Veitutorgi í Elliðaárstöð er blágræn ofanvatnslausn Á Veitutorgi rennur regnvatn af nærliggjandi þökum og stéttum í opnum rennum niður í tjörnina. Í gegnum grófan botn tjarnarinnar seytlar vatnið aftur niður í jarðveginn og inn í vatnshringrásina. Víða í borginni má finna blágrænar ofanvatnslausnir. Stundum eru þær þannig að regnvatn rennur um niðurföll í lagnir sem leiða vatnið út í náttúruna án þess að sameinast skólpinu. Blágrænar ofanvatnslausnir eins og þessar eru betrai fyrir vatnið, jörðina og budduna.