2. janúar 2022
Bilun í dælu hjá Rangárveitum

Í gær kom upp bilun í dælu í Rangárveitum sem sér Rangárþingi ytra, Rangárþingi eystra og Ásahreppi fyrir heitu vatni. Af þeim sökum er lægri þrýstingur á kerfinu á öllu veitusvæðinu.
Búið er að takmarka afhendingu á heitu vatni til stórnotenda en afar mikilvægt er að allir viðskiptavinir Rangárveitna noti eins lítið heitt vatn og mögulegt er á meðan á viðgerð stendur. Takist að draga úr notkun getur það komið í veg fyrir að fara þurfi í kerfisbundnar lokanir á veitusvæðinu.