21. desember 2025

Beta og Didda dropi á fjórða í aðventu

Beta og Didda dropi á fjórða í aðventu
Gleðilegan fjórða í aðventu Takk fyrir samfylgdina á aðventunni. Á sunnudögum hefur starfsfólk Elliðaárstöðvar hefur sagt frá  jólunum sínum og tengingu við orkuverurnar. Nú styttist heldur betur í jólin en þá þarf að huga að öllum orkuverunum sem tryggja að við öll getum átt gleðileg jól. Síðasta sagan er í boði Elísabetar sýningarstjóra Elliðaárstöðvar. Elísabetu... Read more »

Gleðilegan fjórða í aðventu

Takk fyrir samfylgdina á aðventunni. Á sunnudögum hefur starfsfólk Elliðaárstöðvar hefur sagt frá  jólunum sínum og tengingu við orkuverurnar. Nú styttist heldur betur í jólin en þá þarf að huga að öllum orkuverunum sem tryggja að við öll getum átt gleðileg jól. Síðasta sagan er í boði Elísabetar sýningarstjóra Elliðaárstöðvar.

Elísabetu sýningastjóra finnst mikilvægt að hugsa vel um Diddu dropa á jólunum

,,Ég elska að fara í jólabað. Ég tek mér góðan tíma í það á aðfangadag og er yfirleitt búin að fara í bað áður en ég byrja á eldamennskunni. Ég gæti þess að láta vatnið ekki renna að óþörfu. Þannig passa ég að Didda dropi og vinir hennar geti sinnt sem flestum um jólin. Ég passa að nýta hvern einasta dropa vel svo það fari ekkert vatn til spillis. " segir Elísabet