16. febrúar 2021

Aukin vöktun neysluvatns í Heiðmörk

Aukin vöktun neysluvatns í Heiðmörk
Veitur hafa sett upp vöktunarbúnað til að vakta mögulegar breytingar á efnainnihaldi neysluvatns frá vatnstökusvæðum í Heiðmörk ef kæmi til eldgoss á Reykjanesskaga. Tekin var ákvörðun um vöktunina í kjölfar fundar með almannavarnadeild Ríkislögreglustjóra  sem haldinn var þegar land reis vegna kvikuinnskots nærri fjallinu Þorbirni við Grindavík. Með gosi á því svæði gætu gosefni borist til höfuðborgarsvæðisins, fallið niður á vatnstökusvæðin og ógnað drykkjarhæfi vatnsins.