2. september 2019
Allt þéttbýli í Mosfellsbæ komið í samband við Ljósleiðarann

Allt þéttbýli í Mosfellsbæ komið í samband við Ljósleiðarann
Lokið er tengingu allra heimila í þéttbýli Mosfellsbæjar við Ljósleiðarann. Af þessu tilefni afhenti Erling Freyr Guðmundsson, framkvæmdastjóri Gagnaveitu Reykjavíkur, Haraldi Sverrissyni bæjarstjóra skjöld til vottunar á þessum áfanga í uppbyggingu innviða í sveitarfélaginu.
Fleiri áfangar eru framundan því í vor samþykkti bæjarráð samning við Fjarskiptasjóð um stuðning við ljósleiðaratengingu í dreifbýli sveitarfélagsins.