6. júlí 2020
Afhendingaröryggi Veitna á rafmagni staðfest

Niðurstöður START hópsins, starfshóps um rekstrartruflanir, fyrir 2019 staðfesta mælingar Veitna um að raforkuöryggi til viðskiptavina Veitna hafi verið afar stöðugt á árinu. Um töluverða bætingu er að ræða frá fyrri árum sem þó voru fremur góð. Í skýrslu START-hópsins fyrir árið 2019 kemur fram að hjá dreifiveitum rafmagns í þéttbýli sé meðallend skerðingar yfirleitt innan við klukkustund. Hjá Veitum var þessi stuðull 7 mínútur árið 2019 sem er töluverð bæting og virkilega góður árangur en þetta þýðir að áreiðanleikastuðull rafmagns hjá Veitum er 99,99867%.