9. júlí 2024
Af hverju að byggja Coda Terminal?

Carbfix hefur frá árinu 2007 lagt lóð á vogarskálarnar í baráttunni gegn loftslagsbreytingum með því að sinna viðamiklu rannsóknarstarfi sem hefur leitt af sér sannaða leið til þess að breyta lofttegundinni koldíoxíði (CO2) í steindir (karbónöt). Aðferðin byggir á náttúrulegum ferlum, en yfir 99% af öllu kolefni á jörðinni er bundið í bergi, en hún var þróuð áfram eftir viðamiklar tilraunir og hefur verið rekin á iðnaðarskala á Hellisheiði í áratug.