10. október 2024
Að móta tækifæri

Fyrir einhverjum áratugum síðan hefði fáum dottið í hug að á Íslandi yrðu starfandi stór alþjóðleg nýsköpunar- og tæknifyrirtæki á borð við Marel og Össur eða að íslenskar rannsóknir í heilbrigðisvísindum yrðu eftirsóttar á heimsvísu. Með frumkvöðlastarfi hafa þekking, störf og tekjur af starfsemi fyrrum sprotafyrirtækja skipt sköpum fyrir samfélagið. Mörg þessara fyrirtækja eiga upptök sín í umhverfi Háskóla Íslands og samstarfsháskóla.