12. september 2025

50.000 gestir í sumar!

50.000 gestir í sumar!
Nú þegar sumarið er á enda er gaman að líta til baka og sjá hvað hefur verið á döfinni en mikill fjöldi gesta hefur heimsótt svæðið í sumar. Formleg opnun Elliðaárstöðvar fór fram í maí þar sem Gestastofa Elliðaárstöðvar var opnuð með pompi og prakt. Frá opnun hefur ýmislegt fjölbreytt farið fram í Gestastofunni allt... Read more »

Nú þegar sumarið er á enda er gaman að líta til baka og sjá hvað hefur verið á döfinni en mikill fjöldi gesta hefur heimsótt svæðið í sumar. Formleg opnun Elliðaárstöðvar fór fram í maí þar sem Gestastofa Elliðaárstöðvar var opnuð með pompi og prakt. Frá opnun hefur ýmislegt fjölbreytt farið fram í Gestastofunni allt frá smástundasýningu í fundi, vinnustofur og starfsmannaskemmtun. Þá hafa nokkrir viðburðir farið fram í sumar en þar má nefna Hamingjuhlaup samtakanna ´78, Stelpur, stálp og tækni, Nýsköpunarfestival Veitna, Flipp festival, Auðlindahringir, Meistarabúðir Hugmyndasmiða, Dj viðburður og margt fleira. Við hvetjum fólk sem hefur áhuga á að vita hvað er framundan í Elliðaárstöð að skrá sig á póstlista hér. Þar verður upplýst um allt það skemmtilega sem framundan er í Elliðaárstöð; smástundasýningar, viðburðir og fleira.