19. mars 2019

192 milljóna króna hagnaður Gagnaveitu Reykjavíkur árið 2018

192 milljóna króna hagnaður Gagnaveitu Reykjavíkur árið 2018
192 milljóna króna hagnaður Gagnaveitu Reykjavíkur 2018 Afkoma Gagnaveitu Reykjavíkur var góð á árinu 2018 og skilaði starfsemin 192 milljóna króna hagnaði. Lykillinn að því er að á sama tíma og tekjur uxu með vaxandi vinsældum Ljósleiðarans dróst rekstrarkostnaður saman. Nú sér fyrir endann á því mikla fjárfestingarverkefni að hvert einasta heimili í þéttbýli á höfuðborgarsvæðinu verði tengt Ljósleiðaranum og eigi kost á Eitt gíg netsambandi. Um 70% heimila í landinu eiga nú kost á að nýta sér Ljósleiðarann.