Ársfundur Orkuveitunnar 2026

Loading...

Ársfundur Orkuveitunnar verður haldinn þann 16. apríl n.k. í höfuðstöðvum okkar að Bæjarhálsi 1 í Reykjavík á milli klukkan 15:00 og 17:00.

Í ár verður sjónum beint að því hvernig aukin orkuöflun og ábyrg auðlindanýting skapa raunveruleg verðmæti fyrir samfélagið og styrkja samkeppnishæfni Íslands til framtíðar.

Á fundinum verður fjallað um hlutverk Orkuveitunnar og fyrirtækja – Veitna, Orku náttúrunnar, Carbfix og Ljósleiðarans – í uppbyggingu orku, innviða og nýsköpunar fyrir vaxandi samfélag.

Fulltrúar atvinnulífs og stjórnvalda taka þátt í umræðum um framtíð orkunnar á Íslandi, þar á meðal fjármálaráðherra og framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins.


Hreinu tækifærin eru hafin

– orkuöflun, nýting auðlinda og samkeppnishæfni Íslands

Sævar Freyr

Orkuveitan áformar að fjárfesta fyrir um 230 milljarða króna á næstu fimm árum m.a. í aukinni orkuöflun og innviðum. Sævar setur stóru myndina í orkumálum í samhengi og ræðir tækifærin – en einnig hvaða hindranir, regluverk og ákvarðanir skipta sköpum fyrir samkeppnishæfni Íslands.

Sævar segir m.a. frá jákvæðum niðurstöðum úr jarðhitaleit á Hellisheiði, möguleika í vatnsafli, þróun orkukerfisins og nýtingu glatvarma til framtíðar.

Sævar Freyr Þráinsson, forstjóri Orkuveitunnar


Heitasta tækifærið

– þegar vísindi og þekking opna nýjar víddir í jarðhita

Hera fjallar um mikilvægi vísinda í orkuöflun framtíðar og hvernig sú þekking sem byggst hefur upp á Íslandi í jarðhita er að skapa áður óséð tækifæri.

Sérstök áhersla verður lögð á djúpnýtingu og IDDP-3, eitt metnaðarfyllsta rannsóknaverkefni á sviði jarðhita í heiminum, og hvernig öflugt samstarf vísindafólks, verkfræðinga og fyrirtækja getur opnað nýjar leiðir til orkuöflunar fyrir komandi kynslóðir.

Hera Grímsdóttir, framkvæmdastýra rannsókna og nýsköpunar


Tengjumst framtíðinni

– innviðir fyrir hálfa milljón Íslendinga

Brynja ræðir mikilvægi þess að orkan komist alla leið til samfélags sem stækkar hratt – þegar Íslendingar gætu orðið yfir hálf milljón á næstu 15 árum.

Lífsgæði sem við teljum sjálfsögð – heitt vatn, örugg orka og traustir innviðir – byggja á stöðugri uppbyggingu og viðhaldi. Í hverju þurfum við að fjárfesta og hvað þarf að setja í forgang? Og hvernig styrkir 55 milljarða uppbygging hitaveitu og dreifikerfa á næstu fimm árum getu samfélagsins til að vaxa og þróast.

Brynja Ragnarsdóttir, forstöðukona vatnsmiðla Veitna


Pallborð

Framtíð orkunnar á Íslandi

Birna Bragadóttir, stjórnandi verðmætasköpunar hjá Orkuveitunni, stýrir umræðum um hvernig Ísland getur nýtt tækifærin sem felast í aukinni orkuöflun, nýsköpun og uppbyggingu innviða. Fjallað verður um forgangsröðun, stefnu og samvinnu stjórnvalda og atvinnulífs til að tryggja næga orku og samkeppnishæfni Íslands til framtíðar.

Þátttakendur í pallborði:

  • Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins
  • Daði Már Kristófersson, fjármálaráðherra
  • Árni Hrannar Haraldsson, framkvæmdastjóri Orku náttúrunnar
  • Edda Sif Aradóttir, framkvæmdastýra Carbfix


Að lokum

Orkuveitan sem hornsteinn vaxandi borgar

Borgarstjóri fjallar um hlutverk Orkuveitunnar í uppbyggingu höfuðborgarsvæðisins og hversu mikilvægir öflugir orku- og veituinnviðir eru fyrir vaxandi borg. Hún dregur fram hvernig fjárfestingar í orku, nýsköpun og innviðum skapa grunn að lífsgæðum, atvinnuuppbyggingu og sjálfbærri þróun samfélagsins til framtíðar.

Heiða Björg Hilmisdóttir, borgarstjóri Reykjavíkur

Að fundi loknum er öllum ársfundargestum boðið að þiggja léttar veitingar og njóta ljúfra tóna á 6. hæð Vesturhúss Orkuveitunnar.


Skráning á Ársfund Orkuveitunnar 16. apríl 2026

Fundurinn fer fram að Bæjarhálsi 1 í Reykjavík frá klukkan 15:00 - 17:00. Fundurinn er opinn öllum en vegna takmarkaðs sætaframboðs er nauðsynlegt að skrá þátttöku hér fyrir neðan.

Fundurinn verður einnig í beinu streymi. Ekki þarf að skrá sig til að fylgjast með í streymi.